Hvort sem þú ert byrjandi eða reyndur vélsleðamaður muntu auðveldlega geta notið þín á BLAST®. Þetta er sleði á léttum en meðalstórum undirvagni með ALPHA ONE® monorail fjöðrun sem gerir sleðann einstaklega lipran og þægilegan.
Ein af fyrstu vélunum á markaðnum sem er lítil og létt (minna en 22 kíló) gefur þessi EFI vél 65 hestafla (397cc) afköst í hverri ferð. Þriggja þrepa útblástursventlakerfi færir kraftinn á næsta stig og skilar betri viðbrögðum við inngjöf og betri afköst vélarinnar. Sem vökvakæld vél, þrífst hún við lítinn snjóþunga - og mótvægisás fjarlægir mest af titringi vélarinnar. Niðurstaðan - léttur en öflugur aflgjafi sem gerir ferðina skemmtilegri.
ALPHA ONE er eina monorail fjöðrunin á markaðnum en hún gefur sleðanum mun meiri lipurð í erfiðum aðstæðum. Léttbyggð grindin gerir sleðann auðveldan í snúningum og hefur mun minna fyrir því en aðrir svipaðir sleðar.
Arctic Drive System samanstendur af CVTech Trailbloc drifi og CVTech Invance kúplingu. Þessi tækni gerir sleðann mun meðfærilegri í akstri með lágmarksinngjöf til dæmis þegar farið er í gegnum djúpa skafla.
Blast M með Arctic Mountain Suspension™ (AMS), létt og þægileg og gefur sleðanum hámarkslipurð í fjölbreyttum aðstæðum. Sérlega lipur þar sem klifra þarf til dæmis utan slóða og mótstaða er talsverð.
Auðveldur í meðhöndlun og meðfærileiki er það sem þessi sleði býður upp á. Stærð sleðans gerir síðan fleiri ökumönnum kleift að ná meiri upplifun.
Þessi skíði eru hönnuð fyrir betra flot og auðveldari stýringu og auðveldar erfiðustu aðstæðurnar.
Áður óþekkt hönnun á grind sameinast óviðjafnanlegri vél til að skila krefjandi ökuferð sem er auðvelt að höndla.
Treystu á fjölhæfan árangur og áreiðanlegt grip í öllum gerðum fjallaferða.
Framrúða með lægra sniði gefur þér nýja yfirsýn.
Þægindi og öryggi að vera með rafstart gerir þér kleift að fara strax af stað.