Þetta er sleðinn ef þú ætlar eitthvað lengra. Mikil klifurgeta með ALPHA ONE monorail afturfjöðrun.
Þú getur treyst því að komast það sem þú ætlar þér á þessum sleða. Mjúk sigling með hinni byltingarkenndu ALPHA ONE™ monorail afturfjöðrun og auðveldlega stillanlegum FOX® ZERO höggdeyfum.
Monorail fjöðrun opnar á meiri hreyfanleika en nokkur fjallavélsleði í sögunni. Það er bara bara einn Alpha.
Það sigra fáir þennan sleða í samkeppninni.
Hann er hannaður með erfiðar fjallaferðir í huga og er 10 prósent mjórri en fyrri hönnun til að auðvelda þér akstur þvert á hlíðar.
Næsta kynslóð 8000-röð-C-Tec2 vélarinnar skilar nýju stigi afkasta og tækni Arctic Cat tvígengisvélar. Eiginleikar þessarar 794cc C-TEC2 vélar eru:
Nýir strokkar, stimplar, brunahólf, kasthjól og eldsneytisrás.
Þessi háþróaða nýja tækni er hönnuð af Arctic Cat og smíðuð í St. Cloud, Minnesota skilar:
Arctic Mountain Suspension er sérsniðin til að virka vel í djúpum snjó. Léttir, steyptir álspindlar eru með 27 gráðu horn og bjóða upp á ákjósanlegasta halla á skíðum fyrir beygju utan gönguleiða og þegar ekið er í halla. Þeir eru smíðaðir til að draga úr mótstöðu, en tvöföldu A-armarnir úr stálblendi eru léttir og endingargóðir.
Skífa sem er fest á ytra forðabúr þessara FOX 1.5 ZERO QS3 höggdeyfa gerir þér kleift að skipta samstundis á mjúka, miðlungs og stífa stillingu höggdeyfa til að laga sig að breyttum aðstæðum. Þeir jafna svörun höggdeyfa með utanáliggjandi gormum til að takast á við ójöfnur.
„Power Claw"-beltið er létt, með einföldu strigalagi og 3,0 tommu spyrnum - allt svo þú náir betri tökum á akstri í djúpum snjónum. Spyrnurnar eru skaraðar með sveigju fram á við og falla ekki saman eða fyllast og Attack 20" spyrnur gera þér kleift að fljóta yfir djúpan snjóinn.
Mikið flug þýðir mikil högg og þess vegna eru stigbretti Hardcore styrkt með útpressun til að auka stífni.
Þessi innbyggða geymsla fyrir hlífðargleraugu er fest beint í mælaborðið til að tryggja skjótan aðgang og heldur lykilbúnaði þannig öruggum.
Þú þarft ekki að fresta ferðinni vegna myrkurs því sleðinn er með LED aðalljósum.
Þú stillir stöðu skíðanna á augabragði - hafðu hana breiða á slóða eða þrengdu stillinguna þegar þess er þörf.
60 ára Arctic Cat afmælismerki.